Skráðu þig í næsta hóp og fáðu frítt undirbúningsplan strax í dag

Fjarþjálfun á þínum forsendum

Sveigjanlegt æfingaplan

Planið raskast ekkert þó þú missir út daga. Við höldum bara áfram þar sem frá var horfið.

Hægt að æfa í stöð eða heima

Með æfingaplaninu fylgja æfingar sem hægt er að gera heima, bæði með og án búnaðs.

App í símann

Í appinu getur þú séð og skráð æfingarnar þínar og haft öll samskipti við þjálfara á sama stað.

Placeholder Image

Þegar þú hefur lokið skráningu og greiðslu færðu aðgang að appinu og góðu grunn æfingaplani svo þú getur byrjað strax á morgun. Í kjölfarið sendi ég þér örfáar spurningar sem hjálpa mér að setja upp þitt æfingaplan eftir markmiðum, reynslu og tíma.

Dæmi um æfingaplön

Image
Image
Image
Image
Image

    Skráðu þig í næsta hóp og fáðu frítt undirbúningsplan strax í dag

    Skoða planið

    Það sem ég tók helst frá Óla er hans óbilandi trú á að allir geti gert betur ef þeir vilja og hafa áhuga. Hvort sem það er vinnan, fjölskyldan eða formið þitt. Þetta helst allt saman í hendur á endanum og vinnur að einni heild sem ert þú sjálfur/sjálf og þitt líkamlega og andlega ástand.   

    Image

    Jón H Haraldsson
    42 Ára

    Áður en ég byrjaði í þjálfun hjá Óla átti ég í erfiðleikum með finna tíma til að koma hreyfingu inn í skipulagið hjá mér, verandi með 3 stráka heima og í krefjandi vinnu. Óli var fljótur snúa hugafarinu mínum við og hjálpaði mér að koma hreyfingu inn í rútínuna. Alveg frá byrjun hefur verið frábært að vera í samskiptum við Óla. Honum tekst að gera allar æfingar skemmtilegar sama hversu krefjandi þær eru.
    Image

    Benjamín Albertsson
    3ja barna faðir

    Æfingarnar hjá Óla er fjölbreyttar æfingar sem koma manni alltaf á óvart hversu erfiðar þær eru. Eftir að ég byrjaði í þjálfun hjá honum hefur mér liðið betur andlega og líkamlega. Líkaminn minn gjörbreyttist á fyrsti vikunum á mataræðinu hans og ég fann hversu orkumeiri ég varð. 

    Gæti ekki mælt meira með þjálfun hjá Óla. Takk fyrir mig.

    Image

    Ásbjörn Árni Ásbjörnsson
    Íslandsmeistari í sportfitness unglinga 2015

    Ég hef verið hjá Óla í einkaþjálfun og mæli 100% með honum. Hann er ekki bara góður þjálfari heldur er hann þolinmóður og sinnir manni af mikilli alúð
    Image
    Ólafur Jóhannsson
      Hver er þjálfarinn?

      Óli Ólafs

      Image

      Ég er 38 ára tveggja barna faðir og hef starfað sem einkaþjálfari í 18 ár.
      Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á líkamsrækt og er alltaf að leita að áhrifaríkustu aðferðum til þess að kenna og hvetja aðra til að bæta sína heilsu.
      Eftir Covid lokanir og tvö börn hafði ég dottið vel úr minni rútínu og líkamlegt hreysti fór hrakandi. 
      Það var svo í leik við strákinn minn þegar hann sagði "pabbi, einu sinni enn" og ég átti of erfitt með að halda áfram leiknum að ég reif mig aftur í gang og ákvað að snúa mér að því að hjálpa öðrum pöbbum að leika lengur við börnin sín. Ég hef komið víða í þjálfun hvort sem það er ketilbjöllur og Crossfit, fitness og vaxtarrækt eða endurhæfing eftir kulnun/meiðsli.
      Ég hlakka til að vinna með þér.